Stjórn Rannsókna- og Nýsköpunarsjóðs V-Barðastrandasýslu ákvað samkvæmt starfsreglum að árið 2010 skyldu veittir styrkir til verkefna í tveimur úthlutunum.
Stjórn sjóðsins lagði áherslu á að umsóknir endurspegluðu með skýrum hætti verkefni og tengdust áherslum stofnsamþykkta sjóðsins og Atvinnu og Sjávarútvegsráðuneytis.
Fyrri úthlutun 2010
Árherslur fyrir fyrri hluta voru eftirfarandi:
- Þorskeldi. Sérstök áhersla verður lögð á að skoða hagkvæmni þess að fara í seiðaeldi á Vestfjörðum
- Áframeldi í þorski
- Eldi fyrir nýja markaði
- Kræklingarækt. Sérstök áhersla er lögð á að efla fyrirtæki sem eru að hefja ræktun.
- Nýjar, óhefðbundnar tegundir
- Laxeldi. Áhersla á verkefni sem stuðla að uppbyggingu í laxeldi á svæðinu.
Stjórn sjóðsins fundaði reglulega eftir þeim starfsreglum sem stjórn setti sér 2009 og beitti verklagi við mat á umsóknum og afgreiðslu á styrkjum í samræmi við það. Stjórn sjóðsins skipa:
- Þorgeir Pálsson, Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða, formaður
- Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps
- Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða
- Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar. Í kjölfar sveitarstjórnakosninga varð sú breyting að Ragnar lét af störfum og við tók Ásthildur Sturludóttir, nýr Bæjarstjóri Vesturbyggðar. Hún kom formlega inn í stjórn sjóðsins í október.
Eftirfarandi umsóknir bárust í fyrri hluta starfsárs 2010 og tölur vísa í upphæð styrks sem veittur var.
Fyrirtæki/Verkefni | Styrkupphæð |
Íslenskur Kræklingur/Verkefnastjórn við útleigu og notkun nútíma framleiðslutækja í kræklingarækt. | 800.000 |
Nýskel/Framleiðslustj., rekjanleiki í krækilingaræktunar. Þróun hugbúnaðar | 500.000 |
Hafrannsóknarstofnun/Rannsóknir á kynþroskaferli og hrygningu kræklings í Steingrímsfirði og Patreksfirði. | 1.000.000 |
Skelfiskur/Söfnun á rekskel-stytting á framleiðslutíma í kræklingarækt. | 1.000.000 |
Arnarlax/Rannsóknir á laxeldi í Arnarfirði | 2.500.000 |
Samtals veittir styrkir: | 5.800.000 |
Einni umsókn var hafnað, en umsækjandi hvattur til að sækja um í seinni úthlutun 2010. Sem fyrr fengu allir umsækjendur skriflegt svar og umsögn.
Seinni úthlutun árið 2010
Eftirfarandi umsóknir bárust í verkefni seinni hluta starfsárs 2010 og tölur vísa í upphæð styrks sem veittur var.
Fyrirtæki/Verkefni | Styrkupphæð |
Fjarðalax ehf/Sjálfbært Laxeldi – undirbúningur vottunar í sátt við samfélagið | 700.000 |
Mardöll ehf/Vinnsla á innfjarðarrækju á Bíldudal/Styrkur ekki nýttur! | -750.000 |
Hafkalk/Mat á möguleikum til ræktunar þara í Arnarfirði | 1.000.000 |
Oddi hf/Nýting hrognkelsisafurða | 1.000.000 |
Oddi hf/Þorskmagar fyrir Japansmarkað/Styrkur ekki nýttur! | -750.000 |
Náttúrustofa Vestfjarða/ Sedimentation processes under sea-cages | 2.500.000 |
Samtals veittir styrkir | 3.700.000 |