Prenta Senda póst Veftré Minna letur Venjulegt letur Stærra letur Stærra letur - ljóst á dökkum bakgrunni Áskrift að RSS veitu Atvest Áskrift að fréttum Atvest með tölvupósti
30-04-2013
Námsmannastyrkir fyrir lokaverkefni
08-04-2013
Súpufundur með ferðaþjónustuaðilum
27-03-2013
WaterTrail / IPA umsókn
11-03-2013
Átt þú rétt á styrk vegna vöruflutninga?
01-03-2013
Umsóknarfrestur í Vaxtasamning Vestfjarða er 18.Mars
Fréttalisti

Ef þú vilt afskrá netfang,
sendu þá póst til AtVest
Samstarfsverkefni Vaxvest og 3X Technology

Vaxtarsamningur Vestfjarða hefur  ákveðið að styrkja 3x Technology í  rannsóknarverkefni um blóðgun á línufiski í smábátum.  Það er  fyrirtækið 3X Tehcnology í samvinnu við Matís og útgerðaraðila  sem hefur þróað nýjan búnað til blóðgunar um borð í línubátum, svokallaðan Rotex búnað.  Útgerð línubáta er sérstaklega mikilvæg sjávarbyggðum á Vestfjörðum og hefur verið ómetanleg lyftistöng fyrir byggðarþróun þar í gegnum tíðina.  Þannig er ljóst að flest samfélög fjórðungsins væru mun verr stödd í dag en raun ber vitni ef ekki nyti smábátanna við.  Einnig hefur á síðari tímum verið bent á það óspart að veiðar þessara báta séu mun vistvænni en annarra útgerðarflokka.

 

Þrátt fyrir hina mörgu kosti smábátaútgerðar hefur hún einnig sína ókosti.  Sérstaklega eru þekkt ýmis vandamál er snúa að því að viðhalda gæðum hráefnisins eftir að það kemur um borð, en þar sem vinnupláss um borð í þessum bátum er af skornum skammti hefur vantað nokkuð á að meðferð aflans um borð væri sem skyldi. Það á ekki síst við hvað varðar blæðingu en vandasamt hefur reynst að koma fullnægjandi búnaði um borð í smábáta. Sökum þessara gæðavandamála er ímynd smábátaútgerðar ekki eins jákvæð og hún annars hefur burði til að vera, en í raun er varla hægt að hugsa sér ferskara hráefni en krókaveiddan fisk.

 

Þrátt fyrir að rannsóknir bendi til að rétt blóðgun skili meiri verðmætum á þorskafla hefur ekki verið sýnt fram á það með óyggjandi hætti.  Því var talið mikilvægt að sýna fram á með rannsókn að nýr búnaður henti til notkunar um borð í minni línubátum og skili betri gæðum á afla.

 

Verkefnið sem styrkt er af Vaxtarsamningi Vestfjarða  og AVS sjóðnum mun svara þeirri spurningu hvort umtalsverður gæðamunur sé á að láta afla smábáta blæða út í nýjum búnaði sem 3X hafa hannað, Rotex búnaði, miðað við hefðbundna aðferð smábáta, að blæða út í ískrapa í fiskikörum með óyggjandi hætti.

 

Töluvert er í húfi fyrir 3X Techology sem áætlar að framleiðsla í þessum búnaði geti skilað umtalsverðum tekjum í framtíðinni.  Á fimmta hundrað smábáta höfðu aflamark eða krókaaflamark 1. september 2011 og ekki vitað að nokkur þeirra  hafi búnað um borð til að tryggja góða blóðgun á þorsk og ýsu, þ.e.a.s. blóðgunarbúnað.  Ef hægt er að sýna fram á virkni búnaðarins má reikna með að umtalsverður fjöldi báta muni fjárfesta í slíkum búnaði.  Framleiðsla á Rotex-búnaði gæti skilað miklum tekjum fyrir 3X Technology þó mesti ávinningurinn sé með aukinni verðmætasköpun afla smærri línuskipa.





Til baka!
Helstu upplýsingar

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Sími 450 3000 - bréfsími 450 3005

Netfang: atvest[hjá]atvest.is 

 
Höfðagata 3 
510 Hólmavík


Árnagötu 2-4
400 Ísafjörður


Aðalstræti 53
450 Patreksfjörður

Starfsmenn

Neil Shiran K. Þórisson, framkvæmdastjóri shiran[hjá]atvest.is, Sími: 450-3052  


Viktoría Rán Ólafsdóttir, verkefnastjóri með aðsetur á Hólmavík viktoria[hjá]atvest.is, Sími: 451-0077 

 

Jón Páll Hreinsson, verkefnastjóri með aðsetur á Ísafirði jonpall[hjá]atvest.is, Sími: 450-3051

 

Magnús Ólafs Hansson, verkefnastjóri með aðsetur á Patreksfirði magnus[hjá]atvest.is, Sími: 490-2301

 

 

Valeir Ægir Ingólfsson , verkefnastjóri með aðsetur á Patreksfirði valgeir[hjá]atvest.is, Sími: 490-2350

 

 

Margrét J. Birkisdóttir, Skrifstofustjóri Ísafirði. greta[hjá]atvest.is, Sími: 450-3003


Greinar
21-05-2012
Atvinnulíf og sjávarútvegur á Vestfjörðum
04-09-2009
Við getum gert betur!
17-02-2009
Ertu með markmið?
09-02-2009
Forsendur atvinnuþróunar á Vestfjörðum og víðar á Íslandi
06-01-2009
Vestfirðir- land tækifæranna i fiskeldi og skelrækt
Greinalisti