Prenta Senda póst Veftré Minna letur Venjulegt letur Stærra letur Stærra letur - ljóst á dökkum bakgrunni
R og N V-Barð

Framundan er úthlutun fjármagns Rannsókna-og nýsköpunarsjóðs V-Barðastrandasýslu. Úthlutun fer fram í lok febrúar 2012.

Áherslur við úthlutun sjóðsins styðjast við stofnskrá sjóðsins. Stjórn sjóðsins leggur áherslu á að umsóknir endurspegli verkefni sem tengjast með skýrum hætti nýtingu og rannsóknir á staðbundnum auðlindum. Sérstök áhersla er lögð á:

 

  • Fiskeldi.
  • Úrvinnsla á hráefni auðlinda svæðisins.
  • Ræktun og veiði skeldýra.
  • Ferðaþjónustu.

 

Umsóknarfrestur er til miðnættis 14. Febrúar 2012 og skal umsóknum skilað til Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða (Atvest), Árnagötu 2-4, 400 Ísafjörður eða með tölvupósti atvest@atvest.is

 

Að öðru leyti er vísað í hlutverk sjóðsins og reglur um úthlutanir hér á heimasíðu Atvest  og á heimasíðum Háskólaseturs Vestfjarða (www.uwestfjords.is), Tálknafjarðarhrepps (www.talknafjordur.is) og Vesturbyggðar (www.vesturbyggd.is).